Ég eignaðist mitt fyrsta straujárn í fyrradag!
ótrúlegt
tryllitæki sem spúar gufu í gríð og erg. . . . .
notaði tryllitækið í fyrsta skipti áðan. . . . . . . Ætlaði semsagt að strauja hvítu blúnduna sem fer á vögguna....gera vögguna svona ægilega fína!
. . . . En hún er ekkert fín. Blúndan er bara krumpaðri en hún var áður en ég hófst handa við herlegheitin!!!
HVERNIG Á ÞETTA AÐ VERA HÆGT!
.....Pæling! Ef maður kann ekki einu sinni að strauja, kann maður þá að sinna ungabarni?
Takk allir fyrir góð útúngunarráð og góðar kveðjur :) Ég hef ekki á tilfinningunni að þetta barn ætli að láta að sjá sig á næstunni. Í dag er ég 39 vikur, þannig að ég má svosem ekki fara að kvarta strax. Ef barnið líkist pabba sínum eitthvað þá kann það ekki að flýta sér og hefur ekkert tímaskyn og þá er ekki hægt að ætlast til að það mæti fyrr en í fyrsta lagi 13.júli ;)
Þangað til næst.....Kolbrún kasólétta